Fréttir á íslensku

Frá þekkingur til þróunaráhrifa: Endurheimt vistkerfa og sjálfbær landnýting

1 maí 2026
Frá þekkingur til þróunaráhrifa: Endurheimt vistkerfa og sjálfbær landnýting
Langar þig að vita meira um hvernig sérþekking og reynsla Íslands nýtist í þróunarsamvinnu? Á þessum viðburði verður sjónum sérstaklega beint að starfsemi Landgræðsluskóla GRÓ sem stofnaður var árið 2007 til þess að efla þekkingu, hæfni og getu í þróunarlöndum til að endurheimta vistkerfi og stuðla að sjálfbærri landnýtingu.
 
Á viðburðinum verður farið yfir hvernig þekkingaruppbygging á sviði landgræðslu og sjálfbærrar landnýtingar hefur nýst í þróunarríkjum sem glíma við afleiðingar hnignunar vistkerfa og loftslagsbreytinga.
 
Komdu og hlustaðu á fyrrum nemendur Landgræðsluskóla GRÓ segja frá upplifun sinni, árangri og sýn á það hvernig markviss þjálfun, fræðsla og uppbygging færni getur stuðlað að raunverulegum framförum í sjálfbærri þróun.
 
Viðburðurinn er á vegum GRÓ — Þekkingarmiðstöðvar þróunarsamvinnu, Landgræðsluskóla GRÓ, Landbúnaðarháskóla Íslands og utanríkisráðuneytisins í samvinnu við Alþjóðamálastofnun Háskóla Íslands. Um er að ræða síðasta viðburðinn af fjórum þar sem kastljósinu er beint að áhrifum af starfi GRÓ skólanna fjögurra, sem gegna mikilvægu hlutverki í alþjóðlegri þróunarsamvinnu Íslands.
 
12:00 Welcoming words by Dr Ragnheiður Inga Þórarinsdóttir, Rector of the Agricultural University of Iceland
12:05 Opening address by Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, Minister for Foreign Affairs
12:15 Keynote address by Dr Principal Mdolo, 2016 GRÓ LRT fellow and lecturer at the Lilongwe University of Agriculture and Natural Resources in Malawi
12:30 Fellow Snapshots: Experiences and Impact of the GRÓ Land Restoration Training Programme
12:40 Panel discussion: Dr Shuhrat Valiyev, 2023 GRÓ LRT fellow (Uzbekistan) and assistant professor, Prince Addai, 2024 GRÓ LRT fellow (Ghana) and PhD candidate, Brendah Namara, 2023 GRÓ LRT fellow (Uganda) and MSc scholarship recipient and
Nandin-Erdene Geserbaatar, 2026 GRÓ LRT fellow (Mongolia)
Moderated by Guðrún Guðjónsdóttir, GRÓ LRT acting director
13:10 Closing Remarks by Nína Björk Jónsdóttir, Director General of the GRÓ Centre

13:15 Boðið verður upp á léttar veitingar eftir viðburðinn.

Viðburðurinn fer fram á ensku - Öll velkomin skráning fer fram hér / Facebook viðburður.