Fréttir á íslensku

Ísland og UNESCO gera samkomulag um Þekkingarmiðstöð þróunarsamvinnu - GRÓ

30 desember 2019
Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra og Audrey Azoulay, aðalframkvæmdastjóri UNESCO, við undirr…
Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra og Audrey Azoulay, aðalframkvæmdastjóri UNESCO, við undirritunina (Mynd: UNESCO/Christelle ALIX).

Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra og Audrey Azoulay, aðalframkvæmdastjóri Menningarmálastofnunar Sameinuðu þjóðanna UNESCO, undirrituðu 16. desember samkomulag um að Þekkingarmiðstöð þróunarsamvinnu starfi undir merkjum UNESCO sem sjálfstæð stofnun. Í miðstöðinni koma saman fjórir skólar sem starfræktir hafa verið á Íslandi.

GRÓ - Þekkingarmiðstöð þróunarsamvinnu (e. International Centre for Capacity Development – Sustainable use of Natural Resources and Societal Change) er fyrsta þverfaglega stofnun sinnar tegundar undir hatti UNESCO. Í miðstöðinni koma saman fjórir skólar sem hafa fram til þessa verið starfræktir sem skólar Háskóla Sameinuðu þjóðanna hér á landi: Jafnréttisskólinn, Jarðhitaskólinn, Landgræðsluskólinn og Sjávarútvegsskólinn. Skólarnir verða áfram fjármagnaðir af utanríkisráðuneytinu sem hluti af alþjóðlegri þróunarsamvinnu Íslands.

Hlutverk Þekkingarmiðstöðvar þróunarsamvinnu verður sem fyrr að styðja við getu þróunarríkja í Afríku, Asíu og Mið- og Suður-Ameríku á þeim fjórum sviðum sem starfsemin tekur til og auka þar með möguleika þeirra á að ná alþjóðlegum markmiðum sínum í samræmi við heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna.

Á hverju ári koma hópar sérfræðinga frá þróunarríkjum til nokkurra mánaða sérhæfðrar námsdvalar á Íslandi, auk þess sem haldin eru styttri námskeið í þróunarríkjum á vegum skólanna. Þar að auki gefst útskrifuðum nemendum frá öllum skólunum kostur á að sækja um styrki til meistara- eða doktorsnáms á Íslandi. Breytingunum er ætlað að styðja enn frekar við hlutverk skólanna en raska ekki grunnstarfsemi þeirra. Þeir munu áfram auka getu einstaklinga og stofnana í þróunarríkjum, hver á sínu sérsviði, og verða áfram hýstir í samstarfi við viðkomandi fagstofnanir, Orkustofnun, Hafrannsóknarstofnun, Landgræðsluna, Landbúnaðarháskólann og Háskóla Íslands.