Jafnréttisskóli GRÓ útskrifar sinn stærsta útskriftarhóp frá upphafi
Tuttugu og sex nemendur frá 16 löndum útskrifuðust úr fimm mánaða námi Jafnréttisskóla GRÓ þann 20. maí. Var þar um að ræða 17. nemendahóp skólans og jafnframt stærsta hópinn hingað til. Þetta var í fyrsta skipti sem einstaklingar frá Úkraínu sóttu skólann, en þrír þátttakendur komu þaðan.
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra flutti ávarp við útskriftina, þar sem hún ítrekaði mikilvægi jafnréttis fyrir sjálfbæra þróun, sagði frá áherslum íslenskra stjórnvalda á sviði jafnréttismála og hvatti nemendur til góðra verka. Einnig fluttu Ólöfu Garðarsdóttir, forseti Hugvísindasviðs Háskóla Íslands, þar sem skólinn er starfræktur, og Irma Erlingsdóttir forstöðumaður Jafnréttisskóla GRÓ, ávörp.
Snúa heim með aukinn kraft og tilgang
Christian Samuel Katwesigye frá Úganda flutti ræðu fyrir hönd nemenda. Hann rifjaði upp ýmsar gleðistundir og áskoranir úr náminu og sagði frá því hvernig námið efli möguleika nemenda til að stuðla að breytingum í sínum heimalöndum til lengri tíma. Nemendur yfirgefi Ísland ekki eingöngu með diplómagráðu í farteskinu, heldur með dýpri skilning á tilgangi og mikilvægi starfa sinna. „Sum af okkur snúa aftur til starfa í ráðuneytum, önnur í grasrótarsamtökum, háskólum eða fjölmiðlum. Öll tökum við með okkur ný verkfæri: gagnrýnar spurningar, samstöðu og samkennd,“ sagði hann.
Jafnréttisskólinn er einn fjögurra skóla sem starfræktir eru á vegum GRÓ – Þekkingarmiðstöðvar þróunarsamvinnu, þar sem íslenskri sérþekkingu, sem gegnir mikilvægu hlutverki við framgang heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna, er miðlað til lág- og millitekjuríkja. Jafnréttisskóli GRÓ er starfræktur hjá Háskóla Íslands og tók til starfa árið 2009. Síðan þá hafa 267 nemar lokið námi við skólann og eru margir þeirra í lykilhlutverkum í sínum heimalöndum í jafnréttismálum og stefnumótun á því sviði.