Fréttir á íslensku

Jafnréttisskóli GRÓ útskrifar tuttugu og þrjá nemendur

25 maí 2023
Jafnréttisskóli GRÓ útskrifar tuttugu og þrjá nemendur

Tuttugu og þrír nemendur frá Jafnréttisskóla GRÓ (GRÓ GEST) útskrifuðust í gær með diplómu á meistarastigi í alþjóðlegum jafnréttisfræðum. Hópurinn er sá fimmtándi sem útskrifast frá Jafnréttisskólanum. Aldrei áður hafa nemendur komið frá jafn mörgum löndum, en þau eru sextán talsins: Kamerún, Eþíópía, Gana, Indlandi, Jamaíka, Keníu, Kosovo, Malaví, Mósambík, Nepal, Pakistan, Síerra Leóne, Srí Lanka, Tansanía, Úganda og Simbabve. Þau eru með ólíkan bakgrunn og starfa á fjölbreyttum sviðum, meðal annars hjá stjórnarstofnunum, fjölmiðlum, grasrótarsamtökum, háskólum og innan listaheimsins, en öll eiga þausameiginlegt að vinna að kynjajafnrétti.

Alls hafa 218 nemendur útskrifast frá Jafnréttisskólanum sem hefur verið starfræktur við Hugvísindasvið Háskóla Íslands frá árinu 2009 sem þáttur í þróunarsamvinnu Íslands. Frá árinu 2020 er hann einn fjögurra skóla sem starfa sem hluti af GRÓ – Þekkingarmiðstöð þróunarsamvinnu undir merkjum UNESCO – Menningarmálastofnun Sameinuðu þjóðanna. Hinir skólarnir eru Jarðhitaskólinn, Sjávarútvegsskólinn og Landgræðsluskólinn. Samtals hafa rúmlega 1600 nemendur, frá yfir 100 löndum, lokið námi við skólana, auk þess sem fjölmargir hafa sótt styttri námskeið sem haldin eru í samstarfslöndum. Einnig styðja skólarnir nemendur til framhaldsnáms við íslenska háskóla.

Í athöfninni voru, sem fyrr, veitt tvenn verðlaun sem kennd eru við Vigdísi Finnbogadóttur, verndara Jafnréttisskólans. Verðlaunin fyrir hagnýtt verkefni hlaut Sana Salim Lokhandwala frá Pakistan en þar setur hún stöðu tíðaheilbrigðismála í Pakistan í samhengi við félagslegt og efnahagslegt misrétti og leggur til leiðir sem tryggja eiga úrbætur og réttlæti. Verðlaun fyrir besta rannsóknarverkefnið féllu í skaut Bijal Dipak Lal frá Tansaníu. Í ritgerð sinni kannar hún menningarlegar hindranir sem fatlaðar konur í Tansaníu mæta þegar kemur að kynferðislegu sjálfræði.

Ávörp fluttu dr. Irma Erlingsdóttir, forstöðumaður Jafnréttisskólans, dr. Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands, og Martin Eyjólfsson, ráðuneytisstjóri utanríkisráðuneytisins. Wevyn Helen Awiti Muganda frá Kenía flutti ávarp fyrir hönd útskriftarhópsins. Irma Erlingsdóttir afhenti nemendum prófskírtein sín og Nína Björk Jónsdóttir, forstöðumaður GRÓ, veitti þeim viðurkenningarskjöld GRÓ GEST.