Fréttir á íslensku

Landgræðsluskóli GRÓ útskrifar 23 sérfræðinga

31 ágúst 2023
Útskriftarhópur Landgræðsluskólans 2023 
- Ljósmyndari: Rósa Björk Jónsdóttir -
Útskriftarhópur Landgræðsluskólans 2023
- Ljósmyndari: Rósa Björk Jónsdóttir -

Landgræðsluskóli GRÓ útskrifaði sinn stærsta nemendahóp frá upphafi þann 29. ágúst sl. en þá brautskráðust frá skólanum 23 sérfræðingar, 12 konur og 11 karlar. Alls hafa þá 198 sérfræðingar útskrifast frá Landgræðsluskólanum á sextán starfsárum skólans.

Landgræðsluskólinn er ein fjögurra þjálfunaráætlana, sem reknar eru af GRÓ – Þekkingarmiðstöð þróunarsamvinnu. Á vegum GRÓ starfa einnig Jafnréttisskóli, Jarðhitaskóli og Sjávarútvegsskóli en miðstöðin starfar undir merkjum UNESCO og er ein af meginstoðum í alþjóðlegri þróunarsamvinnu Íslands.

Heildarfjöldi útskrifaðra nemenda úr skólunum fjórum er nú 1.646. Þá hafa 103 fyrrum nemar við skólana fjóra lokið meistaragráðu frá íslenskum háskólum með skólastyrk frá GRÓ og 22 hafa lokið doktorsprófi með styrk frá GRÓ. Þá hafa rúmlega 4.000 sérfræðingar sótt styttri námskeið sem skipulögð hafa verið af GRÓ skólunum í samstarfslöndum þeirra erlendis.

Hópurinn sem nú útskrifast eru sérfræðingar á sviði sjálfbærrar landnýtingar og vistheimtar og koma frá samstarfsstofnunum Landgræðsluskólans í Asíu og Afríku. Þau eru frá átta löndum: Gana, Kirgistan, Lesótó, Malaví, Mongólíu, Nígeríu, Úganda og Úsbekistan. Tvö þeirra, sem bæði eru frá Nígeríu, starfa fyrir landsvæði sem eru hluti af alþjóðlega netverkinu „Maðurinn og lífhvolfið“ (Man and the Biosphere MAB) á vegum UNESCO. Utanríkisráðuneytið styrkir árlega, yfir fimm ára tímabil, tvo nemendur frá slíkum MAB svæðum og er þetta annað árið af fimm, sem MAB nemendur koma til námsins í gegnum umrætt samstarf.

Ávörp við útskriftina fluttu Martin Eyjólfsson, ráðuneytisstjóri utanríkisráðuneytisins, sem færði nemendum hamingjuóskir Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur utanríkisráðherra, Ragnheiður Þórarinsdóttir, rektor Landbúnaðarháskóla Íslands, sem hýsir Landgræðsluskólann, og Sjöfn Vilhelmsdóttir, forstöðumaður skólans. Sjöfn og Jón Karl Ólafsson, stjórnarformaður GRÓ, afhentu nemendum útskriftarskírteini.

Frá vinstri: Sjöfn Vilhelmsdóttir, forstöðumaður Landgræðsluskólans, Jón Karl Ólafsson, stjórnarformaður GRÓ, Martin Eyjólfsson, ráðuneytisstjóri utanríkisráðuneytisins og Ragnheiður I Þórarinsdóttir, rektor Landbúnaðarháskóla Íslands. - Ljósmyndari: Rósa Björk Jónsdóttir -
Útskriftarhópurinn ásamt forstöðumanni skólans og stjórnarformanni GRÓ - Ljósmyndari: Rósa Björk Jónsdóttir -
Martin Eyjólfsson, ráðuneytisstjóri utanríkisráðuneytisins, flutti ávarp við athöfnina og bar útskriftarnemum kveðju og hamingjuóskir frá Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttur, utanríkisráðherra. - Ljósmyndari: Rósa Björk Jónsdóttir -
Stærsti útskriftarhópur Landgræðsluskólans til þessa. - Ljósmyndari: Rósa Björk Jónsdóttir -