Samstarf GRÓ og útskrifaðra nemenda kynnt á UNESCO deginum
Starf GRÓ til að efla stuðning við útskrifaða nemendur GRÓ skólanna fjögurra, sem nú telja rúmlega 1.800 sérfræðinga um heim allan, var meðal umfjöllunarefna á árlega UNESCO deginum sem íslenska landsnefnd UNESCO stóð fyrir þann 3. júní sl. á Þjóðminjasafninu. Nína Björk Jónsdóttir forstöðumaður GRÓ fjallaði þar um víðfemt net útskrifaðra nemenda, sem nú eru 1.816 talsins og koma frá yfir 120 löndum. Allir halda GRÓ skólarnir góðu sambandi við útskrifaða nemendur sína, en GRÓ vinnur nú að því að skapa tækifæri fyrir nemendur til að vinna saman þvert á fagsviðin fjögur og er horft sérstaklega til þess hvernig skapa megi tækifæri fyrir nemendur til að starfa með UNESCO. Gefnar hafa verið út leiðbeiningar til að hvetja nemendur til að stofna félög í heimalöndum sínum og gefa þeim þannig tækifæri til að miðla af kunnáttu sinni og afla nýrrar þekkingar.
Á UNESCO deginum koma allir aðilar á Íslandi sem tengjast starfi UNESCO saman til að læra hvert af öðru og miðla upplýsingum um starfið. Í ár var auk GRÓ m.a. fjallað um starf fastanefndar Íslands gagvart UNESCO, lifandi hefðir og tilnefningu íslenskrar sundmenningar til lista UNESCO um óáþreifanlegan menningararf, viðurkenningu UNESCO á Heimilisiðnaðarfélagi Íslands, samstarf Íslands og UNESCO á sviði máltækni og tungumála, starf Vigdísarstofnunar, alþjóðlegt samstarf stjórnenda heimsminjastaða, þátttöku Íslands í alþjóðastarfi um hafvísindi á vettvangi IOC, Reykjanes jarðvang og starf UNESCO skóla á Íslandi.