Fréttir á íslensku

Tuttugu og þrír útskrifast frá Sjávarútvegsskóla GRÓ

23 maí 2025
Útskriftarhópur Sjávarútvegsskóla GRÓ 2024-25. 
Efsta röð f.v.: Ben Kiddue (Kenía), Augusto Magalha…
Útskriftarhópur Sjávarútvegsskóla GRÓ 2024-25.
Efsta röð f.v.: Ben Kiddue (Kenía), Augusto Magalhaes (Angola), Henry Allieu (Síerra Leóne), Ivan Kaleo (Ghana), Hanbing Zhang (Kína), Korto Neufville (Líberíu), Kelvin Mkvinda (Malawi), Kristina Setiani (Indónesíu). Miðröð f.v.: Edna Arthus (Ghana), Funny Mkwiyo (Malawi), Wilson Kiyo (Sólómoneyjum), Kasun Dalpathadu (Sri Lanka), Mustapher Kalyango (Úganda), Frank Kabitina (Tanasaníu), Zhongxin Wu (Kína), Lemella Kunei (Papúa Nýju Gíneu). Neðsta röð f.v.: Alice Gamisi (Kenía), Patricia Mulen (Kúbu), Happiness Venant (Tansaníu), Sudeepa Ranasinghe (Sri Lanka), Jamila Kalambo (Tansaníu), Janet Mwangata (Kenía), Nelly Kerebi (Kenía).

Miðvikudaginn 21. maí sl. útskrifuðust 23 sérfræðingar frá Sjávarútvegsskóla GRÓ.

Hópurinn hefur dvalið á Íslandi við nám síðustu sex mánuði í boði íslenskra stjórnvalda sem hluti af alþjóðlegri þróunarsamvinnu Íslands.

Útskriftin í dag markaði ákveðin tímamót þar sem 500. nemandi Sjávarútvegsskólans var útskrifaður.

Alls hafa nú 512 sérfræðingar frá þróunarlöndum lokið þjálfunarnámi frá skólanum síðan hann hóf starfsemi árið 1998.

Í útskriftarhópnum að þessu sinni voru 12 konur og 11 karlar sem komu frá alls 14 löndum: Kúbu, Ghana, Síerra Leóne, Líberíu, Angóla, Malawi, Úganda, Tansaníu, Kenía, Sri Lanka, Kína, Indónesíu Papúa Nýju-Gíneu og Sólómóneyjum.

Í sínum heimalöndum starfa þessir Íslandsvinir sem sérfræðingar -- ýmist á sviði stofnstærðamats, fiskveiðistjórnunar, fiskeldis eða gæðastjórnunar í fiskvinnslu.

Julie Ingham, aðstoðarforstöðumaður Sjávarútvegsskólans, bauð gesti velkomna og stjórnaði útskriftarathöfninni.

Martin Eyjólfsson, ráðuneytisstjóri, ávarpaði samkomuna fyrir hönd utanríkisráðherra, Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur.

Ræður voru fluttar af Lidia Brito, aðstoðarforstöðumanni UNESCO á sviði náttúruvísinda, og Kristina Setiani frá Indónesíu sem talaði fyrir hönd útskriftarnemenda.

Brito dró fram í sinni ræðu að elja og árangur útskriftarnemendanna á síðustu sex mánuðum staðfesti heit þeirra, ekki aðeins um að auka eigin þekkingu, heldur einnig um að efla allra hag með heilbrigðu hafi.

„Þið staðfestið þetta heit þegar alþjóðleg athygli beinist að sjálfbærni hafsins og tengdum áskorunum,“ sagði hún. „Með því að ljúka þjálfun ykkar hér eruð þið einstaklega vel undirbúin til að takast á við eitt meginmarkmið þessarar áratugar, þ.e. „að koma fram með þau vísindi sem við þurfum fyrir það haf sem við þráum.“

Setiani, fyrir hönd samnemenda sinna, þakkaði öllum þeim sem gerðu þeim kleift að taka þátt í sex mánaða námi Sjávarútvegsskólans.

„Fyrir utan kennslustofuna þá lærðum við mikið hvert af öðru“ sagði hún. Við ræddum um heima og geima, borðuðum saman, fórum í vettvangsferðir og lærðum jafnvel saman langt fram á nætur. Við vorum ekki bara samnemendur heldur tókst á með okkur djúp vinátta sem nær yfir höf og lönd sem við munum varðveita um ókomin ár.

Þór Heiðar Ásgeirsson, forstöðumaður Sjávarútvegsskóla GRÓ, stýrði afhendingu útskriftarskírteina.

Hann lýsti þeirri von að þegar nemendurnir snúa heim verði þeir gagnrýnir á það sem fyrir augu ber og sýni hugrekki til að takast á við áskoranir – og verði þannig sannir “umbreytingarfulltrúar”.

Hann þakkaði jafnframt framlag þeirra fjölmörgu aðila sem jafnaðarlega leggja stafsemi skólans lið með óeigingjarnri vinnu og velvild.

Sérstakar þakkir færði Þór fiskeldisrannsóknafyrirtækinu FIRUM í Færeyjum, en öflugur stuðningur þess á undanförnum árum hefur stórlega styrkt þjálfun skólans á sviði sjálfbærs fiskeldis.

Að athöfn lokinni var efnt til móttöku þar sem nýútskrifaðir nemendur kynntu verkefni sín fyrir gestum á sérstakri veggspjaldasýningu.

Martin Eyjólfsson, ráðuneytisstjóri í utanríkisráðuneytinu, ávarpar samkomuna.
Útskriftin fór fram í hátíðarsal Hafró, Fornubúðum 5 í Hafnarfirði. Lidia Brito, aðstoðarforstöðumaður UNESCO á sviði náttúruvísinda í pontu.
Lidia Brito, aðstoðarforstöðumaður UNESCO á sviði náttúruvísinda, ávarpar samkomuna.
Nemandi númer 500 sem útskrifast frá Sjávarútvegsskóla GRÓ, Nelly Kerebi frá Kenía, tekur við útskriftarskírteini sínu. Þór Heiðar Ásgeirsson forstöðumaður stendur í pontu. Við hlið Nelly standa Nína Björk Jónsdóttir, forstöðumaður GRÓ Þekkingarmiðstöð þróunarsamvinnu, og Jón Karl Ólafsson stjórnarformaður GRÓ.
Kristina Setiani, frá Indónesíu, ávarpar samkomuna fyrir hönd nemenda.
Amanda Vang sérfræðingur hjá Firum í Færeyjum stendur hér lengt til hægri og fagnar við brautskráningu nemenda af fiskeldislínu. Færeyingar hafa með mjög myndarlegum hætti stutt þjálfunarnám skólans á sviði sjálfbærs fiskeldis undanfarin ár.
Brautskráðir nemendur kynna rannsóknarverkefni sín á veggspjöldum. Frá vinstri til hægri: Edna Arthus frá Ghana, Funny Mkwiyo frá Malawí, Sudeepa Ranasinghe frá Sri Lanka og Kelvin Mkvinda frá Malawi.
Julie Ingham, aðstoðarforstöðumaður Sjávarútvegsskóla GRÓ (í miðju), fagnar með Jamila Kalambo frá Tansaníu (til vinstri) og Kristina Setiani frá Indónesíu (til hægri).
Nemendur og gestir stilla sér upp eftir brautskráningu.