Fréttir á íslensku

Úkraínskir sérfræðingar hlutu jarðhitaþjálfun á Íslandi

25 mars 2026
Þjálfunin fór að mestu fram í húsakynnum Jarðhitaskóla GRÓ í Urðarhvarfi. Bjarni Richter, forstöðuma…
Þjálfunin fór að mestu fram í húsakynnum Jarðhitaskóla GRÓ í Urðarhvarfi. Bjarni Richter, forstöðumaður Jarðhitaskólans, heldur hér fyrirlestur fyrir hópinn.

Tólf sérfræðingar frá Úkraínu luku vikulangri þjálfun í Jarðhitaskóla GRÓ á föstudaginn, þar sem þau fræddust um alla þætti er varða þróun jarðhita, frá rannsóknum að beinni nýtingu. Þá hlutu þau fræðslu um gerð viðskiptalíkana, umhverfisþætti og lagaumhverfið, en þjálfun þeirra lauk með heimsóknum í Hellisheiðarvirkjun, Carbfix, Landbúnaðarháskólann í Hveragerði og Friðheima.

Þátttakendurnir komu frá úkraínskum orku- og gasfyrirtækjum, orkumálaráðuneyti Úkraínu og þarlendum félagasamtökum á sviði jarðhita. Þjálfunin var í höndum fulltrúa Jarðhitaskólans, ÍSOR, COWI, BBA Elements//Fjeldco og Intellecon.

Þjálfunin er hluti af stuðningi Íslands við orkumál í Úkraínu sem snýr að orkuumskiptum og nýtingu endurnýjanlegra orkugjafa, en miklir möguleikar eru til þróunar jarðhita í Úkraínu.

Jarðhitaskólinn tók til starfa árið 1979 og er einn fjögurra skóla sem reknir eru af GRÓ – Þekkingarmiðstöð þróunarsamvinnu. Hinir skólarnir eru Jafnréttisskólinn, Landgræðsluskólinn og Sjávarútvegsskólinn. GRÓ starfar undir merkjum Mennta-, vísinda- og menningarmálastofnunar Sameinuðu þjóðanna (UNESCO).