Fréttir á íslensku

Útskrifaðir nemendur GRÓ í Malaví hefja undirbúning að stofnun hollnemafélags

27 mars 2026
Útskrifaðir nemendur GRÓ í Malaví hefja undirbúning að stofnun hollnemafélags

Útskrifaðir malavískir nemendur frá öllum fjórum GRÓ skólunum ákváðu, á viðburði sem haldinn var í höfuðborginni Lilongwe þann 26. mars, að hefja undirbúning að stofnun hollnemafélags. Þetta var í fyrsta sinn sem útskrifaðir nemendur úr öllum skólunum fjórum, sem starfa á sviði jarðhita, sjávarútvegs, landgræðslu og jafnréttis, komu saman í landinu. Viðburðurinn var skipulagður í samstarfi við nemana sjálfa, sendiráðs Íslands í Lilongwe og GRÓ miðstöðvarinnar.

Félög fyrir útskrifaða GRÓ nemendur eru vettvangur fyrir samstarf þar sem þeir geta unnið saman að því að koma þekkingu sinni á framfæri og þróað nýja hæfni til að styðja við framgang sjálfbærrar þróunar í landinu. Einnig er tilgangur slíkra félaga að styrkja tengsl nemenda við sendiráð Íslands í samstarfslöndum Íslands í þróunarsamvinnu og skapa tækifæri til að tengja nemendur við UNESCO í heimalöndum þeirra, en GRÓ starfar undir merkjum þeirrar stofnunar. Á fundinum lögðu nemendur fram margar hugmyndir um samstarf sem styðja við hlutverk þeirra sem leiðtoga og drifkrafta breytinga í Malaví, meðal annars með miðlun og sköpun þekkingar. Hugmyndirnar náðu til sameiginlegra rannsóknaverkefna þvert á áherslusvið GRÓ, ráðgjafarverkefna, málþinga, samstarfs við háskólasamfélagið og aukinnar vitundar um mikilvægi sjálfbærrar þróunar innan þeirra geira sem þau starfa, svo fátt eitt sé nefnt. Nemendur stofnuðu starfshóp sem mun leiða undirbúning að formlegri stofnun félags.

Malaví er fjórða stærsta samstarfsland GRÓ

Davíð Bjarnason, forstöðumaður sendiráðs Íslands í Malaví, bauð þátttakendur velkomna og fjallaði um tvíhliða þróunarsamvinnu Íslands og Malaví sem spannar nær fjóra áratugi.

Nína Björk Jónsdóttir, forstöðumaður GRÓ – Þekkingarmiðstöðvar þróunarsamvinnu, lagði áherslu á tilgang og markmið með stofnun félaga útskrifaðra GRÓ nema. Hún benti jafnframt á mikilvægt starf þessa hóps, sem nú telur nærri 1.900 einstaklinga, í að styðja við sjálfbæra þróun um heim allan á fjórum meginsviðum: jarðhita, sjávarútvegi, landgræðslu og jafnrétti kynjanna. Alls hafa 84 einstaklingar frá Malaví sótt þjálfun hjá GRÓ skólunum á Íslandi, fimm hafa hlotið styrki til meistaranáms og sex styttri námskeið hafa verið haldin í landinu. Um helmingur útskrifaðra nema, eða 40 talsins, sóttu viðburðinn.

Á viðburðinum kynntu útskrifaðir nemar starf GRÓ skólanna fjögurra í Malaví, auk þeirra tækifæra og áskorana sem nú eru til staðar innan þeirra geira sem þau starfa við. Þau sögðu á áhrifamikinn hátt frá því hvernig þau stuðla að sjálfbærri þróun innan sinna geira í gegnum störf sín hjá samstarfsstofnunum GRÓ í landinu. Erindi fluttu Carolyn Munthali, sem útskrifaðist úr Sjávarútvegsskóla GRÓ árið 2021; Kondwani Mhone og Robert Chiwamba, sem sóttu Jafnréttisskóla GRÓ árin 2019 og 2022, Gift Wellington Tsokobombwe, sem útskrifaðist úr Jarðhitaskóla GRÓ árið 2012 og sem einnig lauk meistaranámi við Háskóla Íslands á skólastyrk; og Kennedy Adamson, sem útskrifaðist úr Landgræðsluskóla GRÓ árið 2023.

Lucia Victoria Chigamane, verkefnastjóri hjá malavísku UNESCO landsnefndinni sem útskrifaðist úr Landgræðsluskóla GRÓ árið 2025, flutti erindi um starfsemi landsnefndarinnar og samstarf UNESCO Man and the Biosphere-áætlunarinnar og GRÓ LRT, en það var í gegnum það samstarf sem hún kom til Íslands.

Erla Hlín Hjálmarsdóttir, varamaður forstöðumanns í sendiráði Íslands í Lilongwe, stýrði umræðum í kjölfar vinnustofa þar sem nemendur skilgreindu næstu skref í átt að stofnun félags fyrir útskrifaða GRÓ nema í Malaví.

Viðburðinum lauk með móttöku þar sem áfram var rætt um samstarf GRÓ nema fram á kvöld. GRÓ óskar útskrifuðum nemendum í Malaví til hamingju með þetta mikilvæga skref í átt að stofnun hollnemafélags í landinu og óskar starfshópnum velfarnaðar í áframhaldandi vinnu við að koma því á laggirnar.

 

 

Thelma Kaliu, GRÓ GEST Alumna and Erla Hlín, Deputy Chief of Mission at the Icelandic embassy in Lilongwe
Kondwani Macdonald Mhone, GRÓ GEST Alumnus presenting Gender Equality in Malawi
GRÓ Geothermal Training Programme Alumni along with the Director General of GRÓ and representatives of the Icelandic embassy in Lilongwe
GRÓ Land Restoration Training Programme Alumni along with the Director General of GRÓ and representatives of the Icelandic embassy in Lilongwe
GRÓ Fisheries Training Programme Alumni with the Director General of GRÓ and representatives of the Icelandic embassy in Lilongwe
GRÓ Gender Equality Studies and Training Programme Alumni with the Director General of GRÓ and representatives of the Icelandic embassy in Lilongwe.
GRÓ Training Programmes Alumni in Malawi
Nína Björk, the Director General of GRÓ with alumni from GRÓ FTP and GRÓ GEST
GRÓ Training Programmes Alumni in Malawi
Kondwani Macdonald Mhone, GRÓ GEST alumnus, presenting Gender Equality in Malawi
Carolyn Munthali, GRÓ FTP Alumna presenting the area of Fisheries in Malawi
Funny Mkwiyo, a GRÓ FTP alumni
Gift Wellington Tsokonombwe, a GRÓ GTP alumnus and scholarship receiver presenting the Geothermal energy in Malawi
GRÓ Geothermal Training Programme Alumni along with the Director General of GRÓ and representatives of the Icelandic embassy in Lilongwe
GRÓ Land Restoration Training Programme Alumni along with the Director General of GRÓ and representatives of the Icelandic embassy in Lilongwe
GRÓ Fisheries Training Programme Alumni with the Director General of GRÓ and representatives of the Icelandic embassy in Lilongwe
GRÓ Gender Equality Studies and Training Programme Alumni with the Director General of GRÓ and representatives of the Icelandic embassy in Lilongwe.