Útskrifaðir nemendur GRÓ orðnir fleiri en 1.900
Fjöldi útskrifaðra nemenda GRÓ—Þekkingarmiðstöðvar þróunarsamvinnu er kominn yfir 1900 eftir tvær útskriftir sem fram fóru í síðustu viku. Sjávarútvegsskólinn útskrifaði 23 sérfræðinga 20. maí og Jafnréttisskólinn 24 daginn eftir. Á vegum GRÓ eru starfræktir fjórir skólar á sviðum jarðhita, sjávarútvegs, landgræðslu og jafnréttis þar sem íslenskri sérþekkingu á umræddum málasviðum er komið á framfæri við þróunarlönd, til að stuðla að sjálfbærri þróun. GRÓ er ráðuneytisstofnun í utanríkisráðuneytinu sem starfar undir merkjum Mennta-, vísinda- og menningarmálastofnunnar Sameinuðu þjóðanna, UNESCO.

Við útskrift Sjávarútvegsskóla GRÓ flutti Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, ávarp þar sem hann óskaði nemendum til hamingju með árangurinn og ræddi um mikilvægi GRÓ skólanna og þekkingaruppbyggingu. Ráðherrann þekkir starfsemi skólans vel, enda hefur hann sem auðlindahagfræðingur komið að kennslu og starfi skólans yfir tveggja áratuga tímabil og leiðbeint fjölda nemenda.
Í útskrift Jafnréttisskóla GRÓ flutti Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, dómsmálaráðherra , þar sem hún undirstrikaði mikilvægi jafnréttis og alþjóðlegrar samvinnu, auk þess sem hún fjallaði um hlutverk nemenda sem sérfræðinga og drifkrafta samfélagsbreytinga í heimalöndum sínum.
Kellishia George frá Sankti Vinsent og Grenadínur flutti ávarp fyrir hönd útskriftarnema Sjávarútvegsskólans. Þar sagði hún að námið hafi verið krefjandi, umbreytandi og gefandi. „Í dag fögnum við ekki aðeins því sem við afrekuðum, heldur líka öllu því sem við lifðum af, komumst í gegnum og höfum nú náð að ljúka.“
Í útskrift Jafnréttisskólans voru það Georgio Al Chidiac frá Líbanon og Norah Lumnyi Ngwa frá Kamerún sem fluttu ávarp fyrir hönd útskriftarnema. Þau sögðu námið einnig hafa umbreytt sér og vakið upp vilja hjá þeim til að stuðla að breytingum í sínum heimalöndum. „Við snúum heim, ekki aðeins ríkari af þekkingu, heldur einnig full af von, innblæstri og mikilvægast af öllu – sterkri ábyrgðartilfinningu til að halda áfram að knýja fram breytingar, halda áfram að spyrja gagnrýnna spurninga og berjast fyrir þeim breytingum sem við trúum á.“
Jafnréttisskólinn er hýstur í Háskóla Íslands og ávarpaði Silja Bára Ómarsdóttir, rektor skólans, gesti við upphaf athafnarinnar. Það var Jónas Páll Jónasson, sviðstjóri botnsjávarsviðs Hafrannsóknastofnunar, sem bauð gesti velkomna á útskrift Sjávarútvegsskóla GRÓ, sem hýst er á Hafrannsóknastofnun.
Við útskrift Jafnréttisskólans var tveimur nemendum veitt verðlaun sem kennd eru við Vigdísi Finnbogadóttur fyrir framúrskarandi lokaverkefni. Í ár voru það Dr. Gloria E. Swilla frá Tansaníu og Daryna-Mariia Zavhorodnia frá Úkraínu sem hlutu verðlaunin. Við útskrift Sjávarútvegsskólans voru veitt verðlaun fyrir bestu framsetningu á lokaverkefni á veggspjaldi, en það var Prehadi frá Indónesíu sem hlaut verðlaunin.
