Fréttir á íslensku

Úttekt á fyrirkomulagi styrkveitinga fyrir meistara- og doktorsnema í gegnum þjálfunaráætlanir GRÓ

29 september 2023
Úttekt á fyrirkomulagi styrkveitinga fyrir meistara- og doktorsnema í gegnum þjálfunaráætlanir GRÓ

Ný óháð úttekt á fyrirkomulagi styrkveitinga fyrir meistara- og doktorsnema í gegnum þjálfunaráætlanir GRÓ staðfestir að styrkveitingar til framhaldsnáms séu í takt við hlutverk GRÓ, sem og að þær styðji við stefnu Íslands í alþjóðlegri þróunarsamvinnu. Kemur fram að styrkjaprógrammið sé skynsamlegt framhald 5-6 mánaða þjálfunarinnar á Íslandi og eitt af meginhlutverkum GRÓ. Í úttektinni kemur fram að nemendur hafa haft veruleg áhrif heima fyrir og vísbendingar eru um að framlag þeirra hafi haft jákvæð áhrif á samstarfsstofnanir í efnaminni ríkjum. 

Úttektin er óháð og byggir á spurningakönnun meðal nemenda, rýnihópum, viðtölum við helstu haghafa og skoðun á fyrirliggjandi gögnum, þ.m.t. fyrirkomulagi erlendis á sambærilegum verkefnum. 

Í úttektinni eru 10 megintillögur lagðar fram:

  1. GRÓ ætti að leggja styrkveitingar á framhaldsstigi upp sem stefnumiðað áframhald af 5-6 mánaða þjálfun/diplómanámi sem endurspeglar hvernig vönduð menntun getur hámarkað áhrif þróunarsamvinnu til að ná markmiðum alþjóðlegrar þróunarsamvinnu og heimsmarkmiðanna.
  2. Skólarnir fjórir, í samvinnu við GRÓ, eru hvattir til að skoða ólíka kosti til að þróa samræmda klasanálgun við styrkveitingar með það fyrir augum að auka hagkvæmni og skilvirkni.
  3. Skólarnir fjórir ættu að leita leiða til að auka þátttöku ólíkra samstarfsstofnana í styrkjaprógramminu, sem leið til að auka skuldbindingu þeirra og efla getu einstaklinga og stofnana.
  4. GRÓ er ráðlagt að setja upp sérstaka fjárhagsáætlun til fimm ára sem byggir á spá og mati á þörfum núverandi nemenda til að auðvelda áætlangerð til lengri tíma sem spannar alla skólana.
  5. GRÓ og skólarnir fjórir ættu að þróa áætlun um kynningu og öflun fjármuna til viðbótar við grunnfjármögnun utanríkisráðuneytisins.
  6. GRÓ og skólarnir fjórir eru hvattir til að leita tækifæra til þverfaglegrar framkvæmdar í gegnum breytingakenningu 2022-2027 og vöktunar hennar, og tryggja að betur sé fjallað um þverlæg málefni líkt og kynjajafnrétti.
  7. Utanríkisráðuneytið ætti að tryggja að staða forstöðumanns GRÓ sé til þriggja ára hið minnsta til að tryggja samfellu í stjórnun og stofnanaminni.
  8. Skólarnir fjórir ættu að halda áfram að taka forystu í ákvarðanatöku sem varðar menntun og rannsóknir í ljósi þess að akademískt frelsi skólanna hefur sýnt fram á góðan árangur til þessa.
  9. GRÓ og skólarnir fjórir ættu að þróa sameiginlegan ramma fyrir styrkveitingar sem byggir á bestu starfsháttum og setja tengil á heimasíðu GRÓ fyrir allar upplýsingar sem tengjast styrkjaprógramminu.
  10. GRÓ, í samvinnu við skólana, er hvatt til að skoða fýsileika þess að gera formlegt samkomulag við samstarfsháskóla á Íslandi og alþjóðlega til að auka akademíska og félagslega velferð styrkhafa, og til að styrkja tengslin milli akademíu og þróunarsamvinnu.

Skýrsla (á ensku)

Lesa má meira um úttektir á sviði þróunarsamvinnu Íslands, á vefsíðu Stjórnarráðsins.