Fréttir á íslensku

Ársskýrsla GRÓ—Þekkingarmiðstöðvar þróunarsamvinnu fyrir árið 2025 komin út

6 júlí 2026
Nemendur Jarðhitaskóla GRÓvið eldgosið við Stóra-Skógafell á Sundhnúksgígaröðinni.
Nemendur Jarðhitaskóla GRÓvið eldgosið við Stóra-Skógafell á Sundhnúksgígaröðinni.

Heildarumfang starfsemi GRÓ—Þekkingarmiðstöðvar þróunarsamvinnu á árinu 2025 er sett fram í ársskýrslu GRÓ 2025 sem nú hefur verið gefin út. Alls útskrifaðist 91 sérfræðingur úr fimm til sex mánaða námi á vegum GRÓ á árinu og höfðu í lok árs samtals 1.858 sérfræðingar útskrifast úr skólunum fjórum sem starfræktir eru á vegum GRÓ, það er Jafnréttisskólanum, Jarðhitaskólanum, Landgræðsluskólanum og Sjávarútvegsskólanum. GRÓ styrkir einnig útskrifaða nemendur til framhaldsnáms og luku níu styrkþegar slíku námi á árinu. Þrír útskrifuðust með doktorspróf og sex með meistaragráðu. Einnig voru ýmis námskeið haldin á árinu, á Íslandi, í samstarfslöndum og á netinu. GRÓ starfar undir merkjum Mennta-, vísinda- og menningarmálastofnunar Sameinuðu Þjóðanna (UNESCO).

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra leggur í ávarpi sínu fremst í skýrslunni áherslu á að GRÓ skólarnir hafi verið mikilvægur hluti þróunarsamvinnu Íslands í nærri fimm áratugi. „Með því að miðla reynslu Íslands á sviðum sem hafa gegnt lykilhlutverki í okkar eigin þróun – jarðhita, sjávarútvegi, landgræðslu og jafnrétti – stuðlar GRÓ að því að skapa tækifæri til varanlegra breytinga um heim allan,“ segir ráðherra og dregur fram árangur af starfinu og hvernig útskrifaðir nemendur skólanna hafa stuðlað að framþróun í heimalöndum sínum. „Árangur þeirra minnir okkur á mikilvæga staðreynd: Þróunarsamvinna snýst ekki aðeins um verkefni, skýrslur eða tölur. Hún snýst um fólk. Hún snýst um að fjárfesta í mannauði og valdefla fólk til að leiða breytingar þar sem þeirra er mest þörf“ segir hún.

Í skýrslunni er jafnframt að finna viðauka um starf hvers og eins skóla, sem og sögur af starfi nemenda eftir útskrift og dæmi um hvernig þeir hafa nýtt þjálfunina til góðra verka í heimalöndum sínum. Þá eru upplýsingar um starf ársins færðar inn í árangursramma þar sem umfang starfseminnar er sett fram á samræmdan hátt.