Fréttir

3 mars 2026

Kynja­jafn­rétti for­senda þróunar og fram­gangs

Á undanförnum árum hefur heimsbyggðin orðið vitni að því hvernig réttindi, sem talin voru örugg og óumdeild, eru dregin í efa. Jafnréttisbarátta mætir vaxandi andstöðu víða um heim, vegið er að grundvallarréttindum kvenna og hinsegin fólk verður fyrir auknum ofsóknum. Síðustu misseri höfum við séð hversu brothættar framfarir síðustu áratuga í jafnréttismálum eru. Með einu pennastriki má afnema réttindi sem voru afrakstur áratuga, jafnvel aldalangrar baráttu.
20 febrúar 2026

Frá þekkingu til áhrifa: Aðför að jafnrétti

Opinn fundur á vegum GRÓ – Þekkingarmiðstöðvar þróunarsamvinnu, Jafnréttisskóla GRÓ og utanríkisráðuneytisins í samvinnu við Alþjóðamálastofnun Háskóla Íslands.
20 febrúar 2026

Mikilvægt samstarf í formi þekkingaryfirfærslu, rannsókna og nýsköpunar

Orka náttúrunnar og Jarðhitaskólinn eru nú í samstarfi um þekkingaryfirfærslu, rannsóknir og nýsköpun á sviði jarðhita, sjálfbærrar auðlindanýtingar og umhverfisverndar.
20 febrúar 2026

Kynningarfundur um ráðgjafalista utanríkisráðuneytisins í þróunarsamvinnu

Hefur þú áhuga á að taka þátt í ráðgjafaverkefnum í þróunarríkjum á vegum alþjóðastofnana?
Annakay Crawford er stödd á Akureyri um þessar mundir þar sem hún tekur þátt í sérhæfingarlínu GRÓ‑námsins í fiskveiðistefnu og stjórnun, með áherslu á íslenska fiskveiðistjórnunarkerfið.
Ljósmynd: Þorgeir Baldursson.
16 febrúar 2026

Get lært mikið af stjórnun fiskveiða á Íslandi

Fiskifræðingurinn Annakay Crawford frá Jamaíku sækir nú nám í Sjávarútvegsskóla GRÓ.
12 febrúar 2026

Efling þekkingar í sjávarútvegi skilar árangri

Fátt hefur mótað íslenskt samfélag jafn djúpt og nálægð okkar við hafið.